VIðhald, viðgerðir og bilanagreining í Reykjavík | Hringdu í okkur: 519-5343

Verkstæðið þitt fyrir Volkswagen Audi & Skoda
Áreiðanlegar viðgerðir, reglulegt viðhald og nákvæm bilanagreining fyrir eldsneytis-, hybrid og rafbíla.
4.9 out of 5
Afhverju að velja okkur?
Við bjóðum upp á persónulega þjónustu, framúrskarandi gæði og sérþekkingu á Volkswagen, Audi og Skoda.
Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, bilanagreiningu eða viðgerðir aðstoðum við þig við að halda bílnum þínum öruggum, áreiðanlegum og í toppstandi.
Starfsfólkið okkar leggur metnað í fagmennsku, vönduð vinnubrögð og skýr samskipti við viðskiptavini.
Markmiðið okkar er að gera allt ferlið eins einfalt, þægilegt og áhyggjulaust og mögulegt er.
VIð vinnum verkið rétt, í fyrstu tilraun
Útskýringar á mannamáli
Vinalegt og hjálpsamt viðmót

Tímareimar & tímakeðjur

Gírkassar & sjálfskiptingar

Þjónustuskoðun

Smurþjónusta


Þjónusta byggð á áreiðanleika
Hvort sem bíllinn þarfnast viðhalds, bilanagreiningar eða viðgerðar er markmið okkar einfalt: að finna vandamálið, útskýra lausnina á mannamáli og hjálpa þér að komast örugglega aftur af stað.
Regluleg og skýr samskipti í öllu ferlinu
Útskýringar með myndum og myndböndum.
Verkferlum fylgt frá framleiðanda
Gæðaeftirlit viðgerða

Þú bókar tíma
Bókaðu tíma á vefsíðunni, með tölvupósti eða í síma 519-5343. Við förum yfir hvað þú þarft og finnum tíma sem hentar þér.
Þú kemur með bílinn til okkar
Komdu með bílinn á opnunartíma eða skilaðu honum hvenær sem er sólarhringsins. Ef þú kemur utan opnunartíma geturðu einfaldlega skilið lykilinn eftir í lyklalúgunni okkar.
Við framkvæmum grunnskoðun og heyrum svo í þér
Við byrjum á að fara yfir ástand bílsins og þjónustusögu. Síðan höfum við samband og útskýrum hvað við finnum með myndum og myndböndum, svo þú sjáir nákvæmlega hvað þarf að gera. Við framkvæmum aldrei neitt nema með þínu samþykki.
Þú sækir bílinn tilbúinn í næsta ævintýri
Þegar bíllinn er tilbúinn látum við þig vita. Þú getur sótt hann á opnunartíma eða fengið lyklana úr rafræna lyklaboxinu okkar þegar þér hentar.
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar bestu meðmæli
Við leggjum metnað í heiðarlega þjónustu, skýr samskipti og vandaða vinnu. Hér er brot af því sem viðskiptavinir okkar hafa að segja.
"Framúrskarandi þjónusta. Viðmótið í afgreiðslunni var svo vinalegt og drengurinn útskýrði svo vel fyrir mér hvað hefði verið gert og af hverju, og hvað gæti þurft að gera í náinni framtíð. Ég er svo vön að vera á varðbergi á verkstæðum um að verið sé a reyna að svindla á mér af biturri reynslu að ég varð nánast hálf klökk þegar ég labbaði út. Mæli eindregið með þessu verkstæði!"
Ragnheiður Ákadóttir
Reykjavík
"Ég er búin að skipta við Fyrr í nokkur ár og gæti ekki mælt meira með þeim. Þetta eru prinsipp-menn sem rukka raungjald og smyrja ekki ofan á eins og margir aðrir, ég get alltaf treyst á sanngirni og fæ sömuleiðis alltaf símtal áður en ráðist er í viðgerðir. Þjónustan er hraðvirk og örugg, viðmót starfsmanna er einstaklega viðkunnanlegt og glaðlegt. Mæli hundrað prósent með!"
Sara Bjarnason
Reykjavík
"Þetta er fyrsta skiptið sem ég finn mig knúinn til þess að skrifa rewiew, og ástæðan fyrir því er einföld, ég vildi óska þess að ég hefði haft viðskipti fyrr við þetta verkstæði því þjónustan og viðmótið frá starfsmönnum sem maður fær er alveg bókstaflega uppá 10, synd að geta ekki gefið fleiri stjörnur! Takk fyrir mig"
Óli Guðmunds
Reykjavík


Ertu með spurningu? hafðu samband
Hvort sem þú þarft viðgerð, bilanagreiningu, viðhald eða þjónustu fyrir hybrid- og rafbíla skaltu hafa samband og við svörum eins fljótt og auðið er.









