VIðhald, viðgerðir og bilanagreining í Reykjavík | Hringdu í okkur: 519-5343


Skýr og áreiðanleg þjónusta frá upphafi til enda
Við teljum að þjónusta og viðgerðir á ökutækjum eigi að vera einfaldar og gagnsæjar. Frá fyrstu skoðun til afhendingar færðu skýrar upplýsingar um hvað er gert og hvers vegna.
Þú bókar tíma
Bókaðu tíma á vefsíðunni, með tölvupósti eða í síma 519-5343. Við förum yfir hvað þú þarft og finnum tíma sem hentar þér.
Þú kemur með bílinn til okkar
Komdu með bílinn á opnunartíma eða skilaðu honum hvenær sem er sólarhringsins. Ef þú kemur utan opnunartíma geturðu einfaldlega skilið lykilinn eftir í lyklalúgunni okkar.
Við framkvæmum grunnskoðun og heyrum svo í þér
Við byrjum á að fara yfir ástand bílsins og þjónustusögu. Síðan höfum við samband og útskýrum hvað við finnum með myndum og myndböndum, svo þú sjáir nákvæmlega hvað þarf að gera. Við framkvæmum aldrei neitt nema með þínu samþykki.
Þú sækir bílinn tilbúinn í næsta ævintýri
Þegar bíllinn er tilbúinn látum við þig vita. Þú getur sótt hann á opnunartíma eða fengið lyklana úr rafræna lyklaboxinu okkar þegar þér hentar.

Fagmennska og reynsla sem þú getur treyst á
Með reynslu, sérþekkingu og réttum búnaði hjálpum við þér að halda bílnum í góðu standi. Við leggjum metnað í að greina vandamálið rétt, útskýra það á mannamáli og sjá um viðgerðina af kostgæfni.
Skýr Samskipti
Við útskýrum niðurstöður á skýran hátt svo þú vitir hvaða vinna er nauðsynleg og hvers vegna.
Vönduð Vinnubrögð
Við vinnum af nákvæmni svo þú fáir áreiðanlega lausn sem endist til lengri tíma.
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar bestu meðmæli
Við leggjum metnað í heiðarlega þjónustu, skýr samskipti og vandaða vinnu. Hér er brot af því sem viðskiptavinir okkar hafa að segja.
"Framúrskarandi þjónusta. Viðmótið í afgreiðslunni var svo vinalegt og drengurinn útskýrði svo vel fyrir mér hvað hefði verið gert og af hverju, og hvað gæti þurft að gera í náinni framtíð. Ég er svo vön að vera á varðbergi á verkstæðum um að verið sé a reyna að svindla á mér af biturri reynslu að ég varð nánast hálf klökk þegar ég labbaði út. Mæli eindregið með þessu verkstæði!"
Ragnheiður Ákadóttir
Reykjavík
"Ég er búin að skipta við Fyrr í nokkur ár og gæti ekki mælt meira með þeim. Þetta eru prinsipp-menn sem rukka raungjald og smyrja ekki ofan á eins og margir aðrir, ég get alltaf treyst á sanngirni og fæ sömuleiðis alltaf símtal áður en ráðist er í viðgerðir. Þjónustan er hraðvirk og örugg, viðmót starfsmanna er einstaklega viðkunnanlegt og glaðlegt. Mæli hundrað prósent með!"
Sara Bjarnason
Reykjavík
"Þetta er fyrsta skiptið sem ég finn mig knúinn til þess að skrifa rewiew, og ástæðan fyrir því er einföld, ég vildi óska þess að ég hefði haft viðskipti fyrr við þetta verkstæði því þjónustan og viðmótið frá starfsmönnum sem maður fær er alveg bókstaflega uppá 10, synd að geta ekki gefið fleiri stjörnur! Takk fyrir mig"
Óli Guðmunds
Reykjavík
Bókaðu tíma fyrir Volkswagen Audi eða Skoda bílinn þinn
Persónuleg þjónusta
Reynsla og sérþekking
Einfalt og þægilegt ferli
Heiðarleg ráðgjöf
Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald eða flóknari viðgerð erum við tilbúin að aðstoða. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband eins fljótt og auðið er.