top of page

Haldex / 4WD

Reglulegt viðhald á Haldex kerfinu hjálpar til við að viðhalda réttri smurningu og koma í veg fyrir slit á mikilvægum íhlutum fjórhjóladrifsins.

Getum við aðstoðað þig með bílinn?

Hvort sem um er að ræða viðgerð, viðhald eða einfaldega spurningu um þjónustu, þá erum við tilbúin að aðstoða.

Panta Tíma

Hamarshöfði 10
110 Reykjavík

MÁN-FÖS: 08:00-16:00
HELGAR: Lokað

Hámarkaðu Afköst Fjórhjóladrifsins

Hvaða er Haldex fjórhjóladrifs kerfi?

Haldex 4WD kerfið er nú orðið staðalbúnaður í öllum Volkswagen Audi Skoda fjórhjóladrifs­bílum (AWD). Kerfið gerir bílnum kleift að skipta hnökralaust á milli framhjóladrifs og fjórhjóladrifs eftir því sem aðstæður krefjast. Hjá FYRR bjóðum við upp á Haldex þjónustu á verkstæðinu okkar á Hamarshöfða.. Sem Sjálfstætt verkstæði í Volkswagen Audi og Skoda höfum við þá þekkingu og búnað sem þarf til að þjónusta kerfið á réttan hátt.

Þarf bíllinn minn Haldex þjónustu?

Í nýrri fjórhjóladrifs bílum er sían, sem var til staðar á eldri útgáfum og safnaði upp slitögnum úr kúplingsbúnaðinum horfin. Í staðinn hefur verið sett inn olíusía/net sem getur stíflast með tímanum. Þegar það gerist getur olían mengast af "drullu". Þetta leiðir til lakari smurningar og þar sem Haldex kúplingin er blaut kúpling er það sérstaklega mikilvægt að olían sé hrein til að koma í veg fyrir ofhitnun og skemmdir á þessum mikilvæga íhlut.

Til að tryggja að Haldex kerfið haldist rétt smurt er regluleg Haldex þjónusta hjá okkur góður kostur. Haldex þjónustan okkar er full þjónusta — þar sem við ásamt olíuskiptum á Haldex fjarlægjum Haldex pumpuna hreinsum sigti, skiptum um þéttihringi og bolta og skipt um síu ef við á.

Haldex Þjónusta

• Olíuskipti á Haldex
• Hreinsun á dælu og sigti
• Athugun á þéttingum
• Skoðun á virkni kerfis
• Skipti á síu ef við á
• Prófkeyrsla eftir þjónustu

Untitled.png
Untitled.png

Verkferlið okkar

1
Hreinsun

Dæla og sigti hreinsuð.

2
Skipti

Olía á Haldex endurnýjuð.

3
Prófun

Fjórhjóladrif prófað í akstri.

Myndasafn Þjónustunnar

IMG_1502 2.jpg

Vantar þið aðstoð með bílinn?

Hringdu í okkur eða pantaðu tíma og við hjálpum þér að finna réttu lausnina.

Frame 8.png
bottom of page